Prófíll

  • Nafn: Guđrún Lilja Curtis
  • Stađur: Kópasker

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvernig verđur áriđ 2010??

Klukkan

Leikur dagsins

Um mig..

Guđrún Lilja Curtis heiti ég, hálf íslensk og hálf bresk.. er ég úr Kópavoginum besta bć ever:)
Ég bý úti á landi á litlum stađ sem nefnist Kópasker, er heimavinnandi eins og er, er nefnilega međ eina 9 mánađa skvísu, ađ nafni Lilja Dröfn, svo á ég einn gaur ađ nafni Kristinn Aron og verđur hann 6 ára í apríl og byrjar í skóla í haust:)
Unnusti minn heitir Arnbjörn Jóhann, hann er héđan frá Kópaskeri, og settumst viđ ađ hér.. hann vinnur í Fjallalambi..

Áriđ 2010

14. febrúar 2010 klukkan 09:02
Jæja góðan dag.. þá er árið 2010 mætt .. og ég byrjuð að blogga aftur eftir Laaaaaangt hlé..

Héðan frá Kópaskeri er bara allt ljómandi að frétta, margt búið að ske og brallað..
Krakkarnir dafna og dafna, Kristinn Aron að verða 8 ára og Lilja Dröfn að verða 3 ára, ótrúlegt fljótt að líða.. bara fullorðið áður en ég veit af. Kristinn er kominn í skóla í Lundi í annan bekk, og gengur honum bara ágætlega.. hann fer héðan um 7:45 í rútuna og kemur ekki heim fyrr en 16:30, og er hann orðinn býsna þreyttur eftir daginn sem ég og skil... Lilja Dröfn er í leikskólanum á Kópaskeri frá 8-2, og líkar henni það bara mjög vel, er alltaf tilbúin að fara inn, Amma Maja sækir hana kl 2 svo mamman geti unnið til 4,,,
af okkur hjónakornum er fínt að frétta, skelltum okkur síðustu helgi bara ein inn á Akureyri á skíði, það var meiriháttar ferð, mikið skíðað og komu strengir svo dagana á eftir...en þess virði..

Svo er mín byrjuð í Boot Camp 2x í viku, bara gaman... maður verður að hreyfa sig eitthvað..
svo reyni ég að fara 3x í viku í íþróttahúsið að lyfta.. enda langar mig að ná þessari h***** fitu af mér, er að klepra útaf þessu h*****...... en eitthvað er að angra mig...

Veðrið hérna er búin að vera alveg meiraháttar, vorveður í lofti, langar helst ekkert að fara fá snjó aftur eftir svona veðurfar, en maður ræður ekki yfir svona.. hlakkar agalega til þegar það kemur sumar...

svo er stefnt að því að verða fermingarveisla hérna á Kópaskeri um páskana, því Jóhanna Kristín er að fara fermast og verður veislan hérna, það verður bara vonandi mjög gaman..

jæja kveð í bili en reyni að vera dugleg að blogga á nýja árinu..
knús og kram :=)

Jćja loksins blogg:)

03. janúar 2009 klukkan 23:57

Halló halló!!!Kiss
Gleðilegt ár:)

Loksins smá blogg!!! enda komið árið 2009, árið sem ég verð 30 ára, vó ég er að komast á fertugsaldurinn....

Síðan síðast er alveg hellingur búið að ske... Aðventan, jólin, áramótin og allt þetta frí, alveg æðislegt bara.. maður nennir varla að fara vinna aftur...

Jólin voru bara æðisleg í alla staði, krakkarnir voru mjög ánægð með sínar gjafir, þau voru orðin svo spennt fyrir þessum degi, sérstaklega Kristinn minn, Liljan fattaði þetta nú ekki alveg, en samt reif hún pakkana eins og herforingi, og vildi alltaf fá meir og meir... Ég fékk líka mjög góðar gjafir, fékk mikið í baðið, og sturtuna, bara æði:) Áramótin voru fín líka, reyndar var Liljan mín lasin, og fór því ekki á brennuna, svo ég var heima með hana meðan allir aðrir fóru þangað, en ég hafði það bara gott og horfði á innlendar fréttir, meðan Liljan sofnaði í fanginu mínu:) Svo þegar hún hresstist, fór prinsinn minn að veikjast og er enn veikur, ekki byrjar árið vel í þessu basli, svo fékk ég þessa heljarinnar frunsu og því fylgdi hræðilegt munnangur, svo ég er að drepast í munninum, ekki þægilegt, en vonandi lagast fljótlega:)
Sólarhringnum þarf víst að fara snúa við, hér hefur allt verið hljótt til svona 10-11, sem er ekki mjög vant að vera, krakkarnir búnir að snúa honum alveg við, og svo er líka erfitt að snúa honum til baka....
Já þá fer lífið að færast aftur í eðlilegt horf eftir frábær jól... Skólinn hjá Kristni byrjar á þriðjudaginn og ég í vinnu á mánudaginn og Liljan einnig...

Svo er stefnan sett á suðurferð í næstu viku, ef veikindin verða búinn, kemur bara í ljós...

Annars er bara gott að frétta héðan, er lítið búin að vera hérna inni eins og sést, enda komið annað til að hanga á og er það facebook, ég er húkkt á því...en ætla fara verða duglegri að skrifa hérna inn, og reyna að fara eitthvað í átak eftir þessi blessuðu jól....


Jæja kveð að sinni:)

Halló kćru vinir:)

06. nóvember 2008 klukkan 14:44

Góðan daginn !!
hvað segið þið gott í kreppunni???:)
Ég segi fínt bara... maður á að vera jákvæður á þessum tíma:) víst þetta er svona ...

Annars er ég að fá gesti í kvöld, og hlakkar mig mikið til þess, nefnilega hún Hafdís mín ætlar að koma og kynna aðeins herberlife dótið ef einhver hefur áhuga þar að segja:) Hún kemur auðvita með hann Tristan Breka litla, og hlakkar mig meira til að sjá litla krúttið... nei nei ykkur öll bara:)Tongue out

Krakkarnir eru voða duglegir hérna... Kristinn minn svo duglegur í skólanum, sem er ekki frásögufærandi, hann klára bók eftir bók, og ef þetta gengur svona vel áfram þá verður hann orðin læs í vor, sem er bara gott:)  Liljan mín verður 18 mánaða á laugardaginn, og tilefni þess fer hún í skoðun og sprautu á morgun.... já ótrúlegt en satt er barnið orðið 18 mánaða, þetta líður mjög hratt.. svo verður Sumarrós frænka mín 2 ára á laugardaginn, sendi henni kossa og knús víst ég er svona langt frá.... en vonandi verður ekki langt þangað til ég sé hana..:)Cool Man svo vel þegar hún kom í heiminn... fékk sms kl 5 um morgunin að lítil stúlka væri fædd og auðvita dreif ég mig upp á deild til að líta hana augum...

Já, þá nálgast jólin óðum:) ég fer til Akureyrar næsta föstudag og ætla ég þá í leiðinni að kíkja á nokkrar gjafir í kreppunni, sjá hvernig verðið er farið til fjandans, nei nei þetta er í fínu lagi bara

jæja kveð í bili....

Já já ég veit!!!!

20. október 2008 klukkan 22:22
Jamm ég ađ verđa frekar lélegur bloggari, enda kannski ekkert skrýtiđ, alltaf mjög lítiđ ađ frétta af mér og mínum, eđa bara ţađ sama:)... Nánar

Leiđindar veđur...

06. október 2008 klukkan 22:03
Það er leiðindar rok úti núna, heyrist í öllum gluggum... ekki gaman:(

Héðan úr Ekrugötunni er allt gott að frétta, lífið gengur áfram.... vann til 6 í dag, bara dugleg.... Krakkarnir dafna bara mjög vel eins og alltaf...

lítið og ekkert merkilegt að ske hjá mér þessa dagana, svo ég kveð að sinni...

Leti bloggari.

25. september 2008 klukkan 22:56
Góða kvöldið..

já ég er býsna löt við að blogga þessa dagana, svo sem lítið að ske hjá mér líka...
Sláturtíð í gangi og þá er nóg að gera einnig.. Addi fer á fætur kl 4 til að fara vinna, svo hann er sofnaður hérna fyrir 9... og börnin einnig svo þá sit ég ein og geri sem minnst, finnst svo gott að hafa smá þögn..
Kristni mínum gengur ágætlega í skólanum, fer til ömmu sinnar í hádeginu til að borða og fer svo aftur eftir hádegi, því við fáum svo stutt hádegi, svo þetta var besta leiðin fyrir hann... Liljan mín er alltaf eins, ljúfmenni.. hún er farin að herma allt eftir bróðir sínum, svo hann má nú passa sig á hvað hann gerir...ég er að reyna segja honum það...Hún er algjört æði... og hann líka:)

En já annars er bara vinna og aftur vinna, reyndar gengur stærðfræðin mín ekkert svaka vel, er að reyna að gera þessi verkefni en það gengur misjfanlega... þarf einhverja hjálp... en þið sem ekki vitið er ég í fjarnámi í stærðfræði 303..hornaföll og vigrar, vó ekki mín grein...

Annars ætlar Hafdís mín að koma til mín líklega helgina 3 október, og halda herberlife kynningu, ekki alveg komið á hreint, en hún kemur einhvern tíman þá.... ætla setja upp auglýsingu í kassan hjá búðinni svo fólk tekur eftir því.. hún ætlar að koma með Tristan Breka litla, vá hvað mig hlakkar til að sjá hann, hann er algjört krútt...

Svo var ég að frétta að mamma ætlar að skella sér bara til Boston í nóv, sko kellu, mér líst bara vel á það.. vonandi kemur hún með eitthvað til baka :)

En jæja ég ætti að fara sofa í minn haus, erfiður dagur í dag:)

kveðja að norðan...

Smá bloggfréttir:)

10. september 2008 klukkan 22:42
Já já eins og þið sjáið er ég búin að breyta um mynd á blogginu mínu, maður þarf nú að gera það annað slagið til að fá ekki leið á því Svalur
Fréttir síðan síðast eru þær að við erum flutt... og flutningurinn er tók aðeins eina helgi, sem er bara fínt, reyndar fluttum við ekki langt, sem betur fer segi ég bara, settum nefnilega bara allt í kassa án utan um það og fluttum það, annars hefði allt brotnað... Húsið er ágætt bara..reyndar erum við ekki alveg búin að koma okkur fyrir, en það kemur síðar.. samt komið aðeins heimilislegt hérna...

svo er sláturtíð hafin en hún byrjaði í dag, fer þá fljótlega allt á fullt í h****** slátrinu, nei nei má ekki segja svona, en það er ágætt, ég er byrjuð að vinna til 2 á daginn sem er mjög gott, og Liljan komin á leikskólan til 2... svo er það prinsinn minn sem er kominn í skóla, og er það frekar spennandi, hann er frekar óduglegur við að lesa heima, en ég læt ekkert undan við það, þá verður hann ekkert sáttur, en ég ætla fara gera svona stjörnublað og setja stjörnu á það ef hann er góður að læra og þá fær hann eitthvað að lokum...

Liljan mín stækkar og stækkar, fór með hana í 15 mánaða skoðun í síðustu viku og mín orðin 83 cm og 13 kg, bara FLOTT stelpa... enda er hún mjög dugleg að borða þessi elska, ekki hef ég þurft að hafa áhyggjur af mínum börnum að þau borði ekki og er það frekar ágætt, enda erum við hvorugir foreldrarnir matvönd, sem er meira en gott.... hún er hætt að gráta eftir þegar ég fer með hana á leikskólan, þá líður mér betur, og er hún farin að hlaupa inn sem er frábært Glottandi..

Stefnan er að fá Hafdísi frænku til mín næstu mánaðarmót, en hún er nýorðin dreifingaraðili Herberlife, og er að spá í að halda kynningu hérna hjá mér, svo þið sem lesið þetta, eruð velkomin á kynningu, sem ég auglýsi síðar..

Jæja þetta er gott í bili, enda klukkan orðin þetta margt.. og mín þarf að fara í háttinn.. svo ég segji góða nótt..Koss

mćtt í borgina:)

22. ágúst 2008 klukkan 23:03
hæhæ, þá erum við Kristinn Aron mætt í borgina, flugið var fínt... hristist smá vélin...mamma sótti okkur út á völl, og beinustu leið í Holtagerðið til ömmu, þar var auðvita kysst og knúsað, Siggi og co voru þar þegar við mættum þangað... en þau eru að fara til Ítalíu á sunnudagsmorgunin.. það var spjallað og svona og svo lá leiðin til Kötu systir, þar var tekið á móti manni með bjór og sólberjafræi, bara gott.. ætla reyndar að gista þar og á svo að vakna frekar snemma til að mæta niðrí bæ og hlaupa.. hlaupið byrjar kl hálf 10... Kristinn Aron fer svo í latarbæjarhlaupið með frændum sínum, verður bara stuð á þeim....

Annars er fínt að frétta af mér, er að spá í að fara í fjarnám í vetur, ég sendi fjármálastjórunum í nokkrum skólum póst og fékk ég til baka svar, en þarf bara að senda einingarnar mínar sem  ég er búin með og þau ætla meta það... á eftir að hugsa hvað ég fer að læra...  Annars er fyrsti dagurinn hjá Kristni mínum í skólanum á þriðjudaginn, og er hann farinn að verða sko spenntur, kannski ég kaupi eitthvað á hann hérna í RVK fyrir skólan....en skólataskan er aðalmálið og valdi hann hana sjálfur...

jæja ég ætla ekki að hanga í tölvu hérna hjá Kötu systir, svo ég ætla hætta þessu... bið bara að heilsa og ég kem með fréttir um hlaupið síðar meir...

kveðja úr borg óttans....

Helgin senn ađ líđa.

03. ágúst 2008 klukkan 21:08
Hæ hæ!!!

Þá fer þessi verslunnarmannahelgi senn að líða þetta árið..
Við fjölskyldan skelltum okkur á Akureyri í gærmorgun...  og var það bara fín ferð:) Þegar við komum lá leiðin beinustu leið á Greifan, þar hittum við Maju, Fjólu og Herdísi. og borðuðum við þar hádegismat Svalur, það var fínt.. eftir það skruppum við í göngugötuna og löbbuðum þar um í smá tíma.. Krakkarnir skemmtu sér konunglega Koss..... Síðan skruppum við á Glerártorgið og versla aðeins... Ég og Kristinn skruppum í eitt tæki í tívolíinu sem var rosalegt.. honum fannst það ekki eins skemmtilegt og hann sá það.. var orðin stjarfur og hvítur í framan... en ég skemmti mér vel... hehehe :)

Þegar búið  var að versla skelltum við okkur í Mývatnsveitina, rosa gott veður og æðislegt þar..Hlæjandi. hittum þar Jódda og Freyr, og borðuðum við í Gamla bæ, rosa góðan mat..
Eftir það lá leiðin heim á leið og var maður komin um 11 leytið í gærkveldi..
Þetta var æðislegur dagur.. Hissa

Já svo er stefnan tekin suður á bóginn 22 þessar mánaðar, en þar ætla ég að hlaupa Glitnishlaupið  með mínum elskulegu systrum, það verður bara gaman.. svo er stefnan að skíra litla prinsinn hann frænda minn þessa helgina, svo ég slæ 2 högg í einu.. fínt bara Ullandi
Annars er fínt að frétta hjá okkur... Krakkarnir dafna vel, svo er bara skólabyrjun eftir ca 3 vikur.. hjá Kristni, hann er sko spenntur.. og svo byrjar Liljan mín í sínum skóla núna á þriðjudaginn...

Jæja þetta verður ekki lengra í bili..
bless bless....

Bongó blíđa á Kópaskeri:)

28. júlí 2008 klukkan 18:21
Maður er að kafna úr hita hérna eftir æðislega helgi... Hitin fór held ég upp í alveg 25 stig, og er það bara æði Brosandi Helgin var alveg meiriháttar..bæði í veðrinu og skemmti bransanum... Brúðkaupið var algjört æði bara...Glottandi

Lífið gengur sinn vanagang samt þrátt fyrir þetta blíðveðurr..

reyndar nenni ég ekki að blogga á þessa síðu lengur eftir að adalbloggið er komið upp...
kannski ég skrifa meir síðar, ætla skjótast út í blíðuna..
bless bless....

Atburđur

Innskráningar kubbur

Leit